%>

 
 
 

Handhafi Eyrarrósarinnar 2008
Aldrei fór ég suður.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar Reykjavík, Byggðastofnunnar og Flugfélags Íslands veitt fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni.

Aldrei fór ég suður verður í húsnæði KNH

Skrifað: 19-03-09

Náðst hefur samkomulag við verktakafyrirtækið KNH á Ísafirði um afnot af nýju og glæsilegu húsnæði þess á Grænagarði á Ísafirði og vilja aðstandendur Aldrei fór ég suður koma á framfæri innilegu þakklæti til hæstráðenda fyrirtækisins. Jafnframt vilja aðstandendur þakka AÓÁ útgerð kærlega fyrir afnot af skemmu fyrirtækisins á Ásgeirsbakka undanfarin tvö ár.

Segja má að skemma KNH sé miðsvæðis á Ísafirði, mitt á milli miðbæjar og Holtahverfis. Nýr og glæsilegur göngustígur milli hverfa á eftir að nýtast vel um páskana og að því gefnu að veðurguðirnir verði eins hliðhollir og áður verður þessi 10-15 mínútna gönguferð bara ánægjuleg fyrir tónleikagesti.

Hátíðin verður haldin föstudaginn langa (10. apríl) og laugardag fyrir páska (11. apríl). Þegar hafa verið birt nöfn nokkurra hljómsveita sem koma fram, en endanlegur listi verður opinberaður á allra næstu dögum.

til baka