%>

 
 
 

Handhafi Eyrarrósarinnar 2008
Aldrei fór ég suður.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar Reykjavík, Byggðastofnunnar og Flugfélags Íslands veitt fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni.

Hver er hvað og hvers er hvurs?

Skrifað: 30-03-09

The sleeping prophets er hljómsveit úr Menntaskólanum á Ísafirði.

Á föstudag var birtur listi yfir þá sem koma fram á Aldrei fór ég suður 2009. Eins og gengur eru sum nöfn þekktari en önnur og bíður manna nú nokkur heimalærdómur þar sem nauðsynlegt er að kynna sér allar sveitirnar sem koma fram.
Til að hjálpa til við lærdóminn hefur rokkstjóri ritað örfá orð um hvert atriði. Lýsingarnar eru langt í frá ítarlegar en ættu að geta hjálpað einhverjum að glöggva sig á atriðunum.
Með því að smella á „Aldrei 2009“ hnappinn og svo í beinu framhaldi á „listamenn“ er hægt að skoða lýsingarnar.
Þá eru komin fimm lög í spilarann hér til hægri og ættu fleiri að bætast við innan tíðar.

til baka