%>

 
 
 

Handhafi Eyrarrósarinnar 2008
Aldrei fór ég suður.
Eyrarrósin er samstarfsverkefni Listahátíðar Reykjavík, Byggðastofnunnar og Flugfélags Íslands veitt fyrir framúrskarandi menningarverkefni á landsbyggðinni.

Tímasetningar og gjöld

Skrifað: 06-04-09

Í undirbúningi er í mörg horn að líta og sjálfsögðustu hlutir geta fallið milli skips og bryggju. Til að fyrirbyggja allan misskilning skal hér tekið fram að tónleikahald stendur yfir milli klukkan 19 og 01 á föstudaginn langa og milli klukkan 16 og 02 á laugardag. Listi yfir hljómsveitir hefur verið birtur en það kemur ekki í ljós fyrr en á skírdag í hvaða röð menn spila. Eins og venjulega er fólk hvatt til að vera sem lengst og sjá með mest og passa sig á því að röðin getur breyst fyrirvaralaust og því er varasamt að ætla að mæta stundvíslega þegar uppáhaldsatriðið manns á að byrja. Það gæti verið búið.

Eins og alltaf eru einhverjir að forvitnast um það hvar er hægt að panta sér miða á hátíðina og hvað hann kostar. Það er ókeypis á Aldrei fór ég suður eins og alltaf, þökk sé góðmennsku, dugnaði og velvilja fyrirtækja, stofnanna og einstaklinga í bænum, KNH verktaka, bakhjarlanna Flugfélags Íslands og Vodafone og styrkgjafanna Ísafjarðarbæ, Menningarráðs Vestfjarða, Tónlistarsjóðs og Kraums.

til baka