Inspired by Iceland
headImg        

Uppboð

Uppboðið endaði í 150.000 og kom það frá Ísólfi Haraldssyni.


Smellið til að sjá stærri. 
Mynd: baldurpan.com
Smellið til að sjá stærri. Mynd: baldurpan.com
Hátíðinni var gefin þessi frábæra lopapeysa í vikunni og fylgdi gjöfinni sú ósk að peysan yrði boðin upp og ágóði uppboðsins færi í að reka hátíðina.
Að sjálfsögðu tókum við gjöfinni fagnandi og ætlum að blása til skemmtilegs uppboðs. 
Uppboðið mun hefjast 20. april kl. 14:00 og lýkur því formlega þegar Mugison stígur á svið á Aldrei fór ég suður, laugardaginn 23. april.
Mugison mun spila í lopapeysunni og fær nýji eigandinn peysuna strax eftir að strákurinn hefur klárað að spila.
Sem sagt kjörið að eignast alvöru minningargrip eftir hátíðina í ár og um leið styðja vel við bakið á hátíðinni.

 

Reglur uppboðsins eru einfaldar:

  • Til að bjóða er sent email á aldrei@snerpa.is
  • Þar verður að koma fram nafn bjóðanda, upphæð boðsins og símanúmer sem hægt er að ná í viðkomandi.
  • Eftir að email hefur verið sent telst tilboðið bindandi.Lágmarksboð er kr. 50.000 (að ósk gefandans)
  • Á þessu Uppboðssvæði aldrei.is verður uppfært á klukkustundar fresti ef hærra boð kemur fram.
  • Uppboðið er öllum opið.
Vefumsjón