Aldrei-afsláttur í Baldur

Viltu stytta aksturinn á leiðinni á Aldrei og endurhlaða rokk-batterýin á meðan? Bílaferjan Baldur getur aðstoðað við það. Ferjuleiðir ehf. vilja hjálpa ferðaglöðum Aldrei-gestum að komast leiðar sinnar til Ísafjarðar með því að bjóða upp á rausnarlegan afslátt í Breiðafjarðarferjuna Baldur yfir páskana. Fyrir þá sem ekki þekkja til siglir ferjan Baldur milli Stykkishólms og Brjánslæks og styttir þannig talsvert ferðina fyrir þá sem vilja aka sunnanverða Vestfirði til Ísafjarðar.

Kóðinn AFES2026 veitir 30% afslátt þegar bókað er inn á www.ferja.is og þar er að finna nánari upplýsingar um Baldur.

Hér er páskaáætlun Baldurs:

PÁSKAÁÆTLUN 2026 🚢🐣

Miðvikudagur 1. apríl

Skírdagur – fimmtudagur 2. apríl 2026

Föstudagur 3. apríl 2026 - Föstudagur langi

Engin áætlun.

Laugardagur 4. apríl 2026

Sunnudagur 5. apríl 2026 – Páskasunnudagur

Engin áætlun.

Mánudagurinn 6. apríl 2026 - Annar í páskum