Mugison og Papamug

Sagan

SAGAN FRÁ MUGISON OG PAPAMUG

Við feðgar vorum að drekka bjór í útlöndum sumarið 2003 og fórum þá að ímynda okkur stórhátíð á Ísafirði þar sem venjulegt fólk væri stjörnurnar og pop-stjörnurnar væru í algeru aukasæti. Okkur fannst svo frábært að sjá fyrir okkur plakat þar sem stærstu stafirnir væru „Dóri Hermans syngur swinging the blues away“ og svo væru helstu meik stjörnur landsins í pínku litlu letri. Við feðgar sátum þarna í nokkra klukkutíma og viti menn við vorum búnir að hanna stærsta og flottasta festival í heimi.

Þegar rann af okkur feðgum héldum við samt áfram að spjalla um þessa hátíð og var það til marks um að hugmyndin væri kannski góð. Okkur langaði að bjóða nokkrum vinum úr bransanum vestur og jafnframt langaði okkur að sýna þeim af hverju við feðgar búum á mörkum hins byggilega heims, ástæðan er náttúrulega augljós, fólkið hérna fyrir vestan. Án þess að detta í einhvern þjóðernisrembing þá finnst okkur feðgum samt fólkið hérna með eindæmum skemmtilegt og opið, hér eru allir sérvitringar, allir hafa skoðanir á öllu og okkur fannst hreinlega kominn tími til að minna fólkið sjálft á þessa staðreynd og um leið sína vinum og kunningjum hversu skemmtilegt það getur verið hérna fyrir vestan.

Það geta allir rekið ættir sínar vestur og ættu því að fletta í símaskránni, bjalla í frænku og frænda, fá að gista, skella tannburstanum í brjóstvasann, pakka vonda skapinu í tösku og senda á Akureyri, klæða sig í góða skapið og bara kíla-á-ða...

Ást
Mugison og Papamug

Við höfum tekið saman lænöppið og myndir frá fyrri hátíðum og er hægt að skoða hvert ár fyrir sig hér að neðan.

Ljósmyndarar eru meðal annars Geiri Þrastar, Ágúst Atla, Birgir Örn, Hlynur Kristjáns, Aníta Björk og Palli Önna.

Aldrei 2024

Aldrei 2024

Aldrei 2023

Aldrei 2023

Aldrei 2022

Aldrei 2022

Aldrei 2021

Aldrei 2021

Aldrei 2020

Aldrei 2020

Aldrei 2019

Aldrei 2019

Aldrei 2018

Aldrei 2018

Aldrei 2017

Aldrei 2017

Aldrei 2016

Aldrei 2016

Aldrei 2015

Aldrei 2015

Aldrei 2014

Aldrei 2014

Aldrei 2013

Aldrei 2013

Aldrei 2012

Aldrei 2012

Aldrei 2011

Aldrei 2011

Aldrei 2010

Aldrei 2010

Aldrei 2009

Aldrei 2009

Aldrei 2008

Aldrei 2008

Aldrei 2007

Aldrei 2007

Aldrei 2006

Aldrei 2006

Aldrei 2005

Aldrei 2005

Aldrei 2004

Aldrei 2004

Maður gerir ekki rassgat einn

Maður gerir ekki rassgat einn