RÚTUR Á ALDREI
Ísafjarðarbær í samvinnu við West Travel býður upp á rútuferðir til og frá nágrannabyggðalögunum yfir á Ísafjörð á Aldrei-helginni. Einnig verður tekinn rúntur inn í fjörð. Framúrskarandi framtak og við hlökkum til að fá okkar besta fólk á svæðið.
Hér eru brottfarartímar:
- Suðureyri 18:30 (við Póstboxið)
- Flateyri 18:40 (við Bensínstöðina og Gunnukaffi)
- Þingeyri 18:00 (við Bensínstöðina)
- Holtahverfi 18:40 (strætóleið)
Svo er brottför til baka af Aldrei-svæðinu (við Háskólasetur) kl. 00:15.
