Friðrik Dór

Hafnfirðingurinn geðþekki Friðrik Dór sló fyrst í gegn haustið 2009 með laginu Hlið við hlið og hefur sent frá sér hvern hittarann á fætur öðrum allar götur síðan. Friðrik kom síðast á hátíðina 2018 og því var löngu kominn tími til að fá hann aftur í skemmuna.