Páll Óskar og Benni Hemm Hemm

Einn skemmtilegasti tónlistarsamruni síðasta árs varð þegar diskókóngurinn Páll Óskar og indíprinsinn Benni Hemm Hemm gáfu út plötuna Alveg, sem hefur heldur betur slegið í gegn. Við búumst við töfrandi stund í skemmunni þegar þeir félagar stíga á svið.