Skúli mennski
Ísfirðingurinn Skúli Þórðarson, betur þekktur sem Skúli mennski (til aðgreiningar frá hundinum Skúla), spilar í sjöunda sinn á Aldrei fór ég suður og er þannig kominn í hóp þeirra listamanna sem hafa komið hvað oftast fram á hátíðinni. Skúli verður með hljómsveit sér til halds og traust til að flytja hressandi búgí og blús.