Úlfur Úlfur
Hipphopp tvíeykið Úlfur Úlfur hefur lengi verið meðal vinsælustu rappsveita landsins og er þekkt fyrir skarpa texta og grípandi melódíur. Úlfur Úlfur er skipuð Skagfirðingunum Arnari Frey Frostasyni og Helga Sæmundi Guðmundssyni. Á nýjustu stuttskífu sinni, Svarti skuggi, sem kom út sumarið 2025, má heyra nýjan og kántrískotinn hljóm.